09.02.22 - 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Shaqiri til Chicago Fire (Staðfest)

Xherdan Shaqiri.

Mynd: EPA

Xherdan Shaqiri.

Mynd: EPA
Svissneski landsliðsmaðurinn Xherdan Shaqiri er búinn að fá félagaskipti yfir til Chicago Fire í Bandaríkjunum.
Shaqiri skrifaði undir þriggja ára samning við Lyon í fyrra en tókst ekki að festa sig í sessi í byrjunarliðinu þar. Hann skoraði tvö mörk og átti þrjár stoðsendingar í ellefu leikjum í frönsku deildinni.
Lyon gaf honum leyfi til að ræða við Chicago og gengu þær viðræður mjög vel.
Shaqiri, sem er þrítugur sóknartengiliður, á leiki að baki fyrir Bayern München, Inter og Liverpool - auk þess að hafa lengi verið lykilmaður í svissneska landsliðinu.
Chicago Fire fékk 34 stig úr 34 leikjum í MLS-deildinni á síðustu leiktíð og komst ekki í úrslitakeppnina.

The A̶l̶p̶i̶n̶e Lake Michigan Messi. #cf97 | @XS_11official pic.twitter.com/ekiHoGhIoY
— Chicago Fire FC (@ChicagoFire) February 9, 2022