09.02.22 - 15:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tvíburasysturnar frá Fylki í Selfoss (Staðfest)

Tvíburnarnir (númer 5 og 3) með Evu Rut og Cecilíu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tvíburnarnir (númer 5 og 3) með Evu Rut og Cecilíu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tvíburasysturnar Íris Una og Katla María Þórðardætur hafa fengið félagaskipti frá Fylki í Selfoss.
Þær eru frá Sandgerði og stigu sín fyrstu spor með Keflavík í meistaraflokki. Þær hafa leikið með Fylki undanfarin tvö tímabil.
Þær eru frá Sandgerði og stigu sín fyrstu spor með Keflavík í meistaraflokki. Þær hafa leikið með Fylki undanfarin tvö tímabil.
Systurnar eru tvítugar, verða 21 árs í næstu viku, og spiluðu þær 14 og 15 leiki með Fylki á síðasta tímabili. Fylkir féll niður í næstefstu deild en systurnar höfðu metnað fyrir því að spila áfram í deild þeirra bestu.
Báðar eiga þær fjöldan allan af unglingalandsleikjum og í síðasta mánuði var Katla María valin í æfingahóp U23 landsliðsins.
Selfoss endaði í 5. sæti í Pepsi Max-deildinni í fyrra.
Báðar eiga þær fjöldan allan af unglingalandsleikjum og í síðasta mánuði var Katla María valin í æfingahóp U23 landsliðsins.
Selfoss endaði í 5. sæti í Pepsi Max-deildinni í fyrra.
