09.03.13 - 09:00
Magnús Már Einarsson
Víkingur Ólafsvík semur við markvörð frá Lettlandi (Staðfest)

Kaspars Ikstens.

Mynd: Víkingur Ólafsvík

Kaspars Ikstens.

Mynd: Víkingur Ólafsvík
Víkingur Ólafsvík hefur samið við lettneska markvörðinn Kaspars Ikstens.
Kaspars hefur verið á reynslu hjá Ólafsvíkingum undanfarna daga en hann spilaði æfingaleik með liðinu gegn Val um síðustu helgi.
Kaspars mun berjast við Einar Hjörleifsson um markvarðarstöðuna hjá Víkingi en Einar hefur staðið vaktina í marki Ólafsvíkinga undanfarin ár.

Kaspars var áður á mála hjá georgíska liðinu Dila Gori og þar áður hjá lettneska meistaraliðinu FC Daugava.
Verið er að vinna í leikheimild fyrir Kaspars og hún verður væntanlega klár í næstu viku en hann verður ekki með Ólafsvíkingum gegn Tindastóli í Lengjubikarnum í dag.

Heimild: Heimasíða Víkings Ó.