09.03.16 - 14:14
Magnús Már Einarsson
Eboue í Sunderland (Staðfest)

Sáttur.

Mynd: Sunderland

Sáttur.

Mynd: Sunderland
Emmanuel Eboue, fyrrum leikmaður Arsenal, hefur samið við Sunderland um að leika með liðinu út tímabilið.
Eboue var án félags eftir að hafa yfirgefið Galatasaray í fyrra. Hann gat því samið við Sunderland þó að félagaskiptaglugginn sé lokaður.
Eboue hefur æft með Sunderland undanfarnar vikur og hann mun nú aðstoða liðið í fallbaráttunni út tímabilið.
„Þegar ég var í Tyrklandi hugasði ég um að koma aftur til Englands því ég spilaði hér áður. Ég þakka Guði, nýju liðsfélögunum og starfsfólkinu sem hefur tekið mér vel,\" sagði Eboue meðal annars í viðtali sem má sjá hér að neðan.