Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 09. mars 2020 15:00
Magnús Már Einarsson
Giroud ánægður hjá Chelsea - Semur hann áfram?
Mynd: Getty Images
Olivier Giroud, framherji Chelsea, segist vera ánægður hjá félaginu en hann segir óljóst hvort að hann geri nýjan samning eða ekki.

Hinn 33 ára gamli Giroud verður samningslaus í sumar og hann virtist á förum í janúar eftir að hafa ekki verið inni í myndinni hjá Frank Lampard.

Giroud hefur hins vegar komið sterkur inn í lið Chelsea í fjarveru Tammy Abraham í síðustu leikjum.

Aðspurður út í framtíð sína sagði Giroud. „Ég veit það ekki. Það er of snemmt að segja til um það en ég er ánægður hér."

„Ég er ákveðinn í að gera mitt besta til að hjálpa liðinu. Þetta hafa verið fimm leikir og ég hef virkilega notið þeirra. Mér líður mjög vel og ég vil gera eitthvað meira til að hjálpa okkur að vinna leiki."
Athugasemdir
banner
banner