24.09.26 - 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Fylkisgoðsögn kveður sviðið

Marija hefur lagt skóna á hilluna

Mynd: Fylkir

Marija hefur lagt skóna á hilluna

Mynd: Fylkir

Fylkiskonan Marija Radojicic hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og kveður félagið sem goðsögn, en þetta kemur fram í tilkynningu frá Fylki.
Maria er 34 ára og lék með Fylki frá árinu 2018. Á þeim tíma spilaði hún 123 leiki og skorað 47 mörk fyrir félagið.
Hún lék með Árbæingum í öllum þremur deildarkeppnum KSÍ og því gengið í gegnum bæði súrt og sætt með liðinu.
Maria lauk ævintýri sínu með Fylki á besta mögulega hátt þegar hún skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri á Einherja í úrslitaleik um sæti í Lengjudeildinni þann 12. september síðastliðinn.
„Eftir öll árin, leikina, mörkin og ótal minningar þökkum við Mariju kærlega fyrir allt sem hún hefur gefið Fylki. Við óskum henni alls hins besta í þeim verkefnum sem bíða hennar og hlökkum til að sjá hana áfram sem oftast á tekk vellinum,“ segir í tilkynningu Fylkis.