Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 09. mars 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Tveir tipparar með 13 rétta
Mynd: Raggi Óla
Tveir tipparar á Íslandi voru með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum á laugardaginn.

Annar tipparinn býr á Egilsstöðum og tekur þátt í getraunastarfinu hjá Hetti. Hann tippaði fyrir 2.119 krónur og skilar getraunaseðillinn rúmlega 3.6 milljónum króna í vasann með aukavinningum.

Hinn tipparinn keypti sinn getraunaseðil á sölustað í Reykjavík og greiddi fyrir hann 5.655 krónur.

Hann styður Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík og fær hann um 3.9 milljónir í sinn hlut með aukavinningum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner