Fotbolti.net
09.03.22 - 12:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Afturelding sektað fyrir ólöglegan leikmann gegn Val

Úr leik síðasta sumar

Úr leik síðasta sumar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Lið Aftureldingar var ólöglega skipað í leik gegn Val í Lengjubikar kvenna þegar liðin mættust 7. mars síðastliðinn. Dennis Chyanne lék með Aftureldingu, en er skráð í erlent félag.

Sjá einnig:
Afturelding sækir landsliðskonu frá Jamaíka (Staðfest)

Leikurinn endaði með 2-0 sigri Vals þar sem Íslandsmeistararnir kláruðu dæmið í lokin.
Í reglugerðum KSÍ um deildarbikarkeppni karla og kvenna, greinum 10.1 og 11.2 segir:

10. SEKTIR
10.1 Lið, sem mætir ólöglega skipað til leiks, skal sæta sekt að upphæð kr. 30.000 og að auki kr. 30.000 fyrir hvern leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með viðkomandi félagi og tekur þátt í leiknum. Félag, sem notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, skal sæta sektum að upphæð kr. 100.000

11. STJÓRN KEPPNINNAR
11.2 Félag, sem notar leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með því eða notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, telst hafa tapað leiknum með markatölunni 0-3 nema tap hafi verið stærra, þá skal sú markatala ráða. Staðfesti skrifstofa KSÍ að þátttakandi hafi verið óhlutgengur í leik skal mótanefnd þegar í stað skrá úrslit leiksins skv. ofangreindu og tilkynna það viðkomandi félögum. Heimilt er að kæra slíka skráningu til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ og skal kærufrestur telja frá þeim degi sem tilkynningin er gefin út.

Í samræmi við ofangreinda reglugerð er Afturelding sektað um kr. 60.000.- Úrslitum leiksins er breytt í 3 – 0 Val í vil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.