09.03.22 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
ÍR fær Argentínumann (Staðfest)

Greco og Arnar Halls

Mynd: ÍR

Greco og Arnar Halls

Mynd: ÍR
Í vikunni fékk Argentínumaðurinn Fran Greco leikheimild með ÍR en hann hafði félagaskipti frá Bandaríkjunum. Fran, sem heitir fullu nafni Francisco Manuel Greco, er einnig með ítalskt ríkisfang og mun spila með ÍR í sumar.
Fran leikur stöðu miðjumanns og hefur Arnar Hallsson, þjálfari ÍR, væntingar um hans frammistöðu:
Fran leikur stöðu miðjumanns og hefur Arnar Hallsson, þjálfari ÍR, væntingar um hans frammistöðu:
„ Ég fékk ábendingu um Fran frá gömlum lærisvein í nóvember á síðasta ári og eyddi miklum tíma í að ræða við Fran. Hann er mjög skapandi og hæfileikaríkur en hans helsti styrkleiki er hversu rólegur hann er á boltann. Það mun taka hann smá tíma að aðlagast liðinu og aðstæðum á klakanum."
„Ég er í engum vafa um að hann hefur hugarfarið til að komast í gegnum veturinn og styrkja okkur í baráttunni sem framundan er," segir Arnar.
Næsti leikur ÍR er gegn Víði í Lengjubikarnum á sunnudag. ÍR leikur í 2. deild í sumar.