Fotbolti.net
09.03.22 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

María Eva gengur til liðs við Þrótt (Staðfest)

María Eva í leik með Fylki síðasta sumar.

María Eva í leik með Fylki síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Varnarmaðurinn María Eva Eyjólfsdóttir er búin að skrifa undir tveggja ára samning við Þrótt Reykjavík og mun leika með liðinu í Bestu deildinni.
María, sem er fædd árið 1997, er bæði öflugur og reynslumikill leikmaður.

Hún hefur leikið yfir 90 leiki í efstu deild kvenna fyrir Stjörnuna og Fylki og á samtals um 180 leiki í öllum keppnum. María hefur einnig leikið fyrir yngri landslið Íslands. María er varnarmaður en um leið mjög fjölhæfur leikmaður sem mun auka bæði samkeppni og breidd í liði Þróttar.

„Við fögnum því mjög að fá Maríu til liðs við okkur," segir Kristján Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar Þróttar. „Hún er mjög góður leikmaður með mikla reynslu og mun án efa verða mikilvægur hlekkur í liði Þróttar næstu árin. Við höfum stefnt að því að efla hópinn og auka breiddina og með Maríu bætist við leikmaður sem sem við vitum að verður mjög góð viðbót við sterka liðsheild.“

Þróttur átti stórkostlegt sumar í fyrra og endaði liðið þá í þriðja sæti Bestu deildarinnar, ásamt því að komast í bikarúrslit þar sem tap var niðurstaðan gegn Breiðabliki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.