09.04.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
FH fær Ashlee Hincks frá Chelsea (Staðfest)

Ashlee Hincks er gengin til liðs við FH.

Mynd: Getty Images

Hin 24 ára gamla Ashlee Hincks er gengin til liðs við FH frá Chelsea á Englandi og er þegar komin með leikheimild með Hafnarfjarðarliðinu.
Ashlee Hincks er 24 ára gömul og getur spilað ýmist á miðju eða sem framherji. Áður en hún kom til Chelsea hafði hún leikið með Gillingham, Watford og Charlton Athletic.
Á vef Chelsea segir að hún sé frábær í að rekja boltann, elski að taka leikmenn á og sé vinnusöm á vellinum.
FH hefur þar með fengið til liðs við sig þrjá leikmenn frá síðustu leiktíð, því áður komu Heiða Dröfn Antonsdóttir og Teresa Marie Rynier til félagsins frá Svíþjóð.
Sex leikmenn eru farnir frá FH. Aldís Kara Lúðvíksdóttir í Breiðablik, Bryndís Jóhannesdóttir í ÍBV, Guðrún Bentína Frímannsdóttir og Sara Hrund Helgadóttir í Grindavík, Aníta Lísa Svansdóttir í Fylki og Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir til Noregs.