Fotbolti.net
09.04.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Oddgeir í Njarðvík (Staðfest)

Gunnar Oddgeir Birgisson.

Gunnar Oddgeir Birgisson.

Canon

Mynd: Aðsend

Njarðvík hefur fengið til liðs við sig Gunnar Oddgeir Birgisson frá Fram.
Gunnar Oddgeir sem er miðjumaður lék með FH í yngri flokkum og varð með þeim Íslandsmeistari í 4., 3. og 2. flokki og bikarmeistari í 2. flokki.

Hann færði sig yfir í Fram 2011 og varð Reykjavíkurmeistari með meistaraflokki félagsins 2012.

Gunnar Oddgeir á að baki 2 leiki með U17 og 3 leiki með U19 ára landsliði Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.