09.04.13 - 16:19
Magnús Már Einarsson
Kristján Flóki í FC Kaupmannahöfn (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FC Kaupmannahöfn hefur staðfest kaupin á Kristjáni Flóka Finnbogasyni framherja FH.
Kristján Flóki hefur skrifað undir þriggja ára samning við FCK en hann mun vera í unglingaliði félagsins til að byrja með.

,,Ég er hér til að verða betri fótboltamaður og ég hlakka til,\" sagði Kristján Flóki við vef FCK en hann mun ganga formlega í raðir félagsins 1. júlí.
,,Ég valdi FC Kaupmannahöfn því að það er eitt stærsta félagið á Norðurlöndunum og í Evrópu.\"
Kristján Flóki er fæddur árið 1995 en hann á að baki leiki með bæði U17 og U19 ára landsliði Íslands.
FC Kaupmannahöfn er með níu stiga forskot á toppnum í Danmörku en Ragnar Sigurðsson, Rúrik Gíslason og Sölvi Geir Ottesen eru allir á mála hjá félaginu.
Hér að neðan má sjá innslag um félagaskpitin frá FC Kaupmannahöfn.