09.04.13 - 11:06
Magnús Már Einarsson
Nichlas Rohde í Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Breiðablik hefur komist að samkomulagi við Nichlas Rohde um að leika með félaginu í Pepsi-deildinni í sumar.
Rohde hefur verið á mála hjá Danmerkurmeisturunum í Nordsælland undanfarin ár en kom á láni til Blika á síðari hluta tímabilsins í fyrra og stóð sig vel.
Hann lék 10 leiki með Blikum í Pepsi-deildinni og skoraði 6 mörk í þeim og þar á meðal bæði mörkin í 2-0 sigri á Stjörnunni í síðustu umferðinni sem tryggði Blikum annað sætið í deildinni og sæti í Evrópukeppni.
Rohde er núna á leiðinni til Spánar þar sem hann hittir félaga sína í Breiðabliki og tekur þátt í æfingaferð liðsins sem hófst í morgun.
,,Það er ljóst að það er mikil fengur að hafa fengið þennan unga og efnilega leikmann til liðsins,\" segir í fréttatilkynningu frá Breiðabliki.
,,Við bjóðum Nichlas Rohde velkominn til leiks að nýju og bíðum spennt eftir að sjá hann í græna búningnum í vor.\"