09.04.14 - 11:44
Elvar Geir Magnússon
Adrian Ramos til Dortmund í sumar (Staðfest)

Adrian Ramos er á leið í gult.

Mynd: Getty Images

Adrian Ramos er á leið í gult.

Mynd: Getty Images

Borussia Dortmund hefur staðfest að félagið hafi samið við sóknarmanninn Adrian Ramos sem kemur eftir félagið frá Herthu Berlín. Hans hlutverk er að reyna að fylla skarðið sem Robert Lewandowski mun skilja eftir sig þegar hann fer í Bayern München.
Dortmund féll úr leik í Meistaradeildinni í gær en samningurinn við Ramos ætti að geta kallað smá fram bros á stuðningsmönnum,
Ramos er kólumbískur landsliðsmaður og segir íþróttastjóri Dortmund, Michael Zorg, að hann smellpassi í leikstíl Jurgen Klopp.
„Adrian Ramos er frábær fótboltamaður og einn af helstu markaskorurum Þýskalands,\" segir Zorg.
Ramos hefur verið í fínu formi á tímabilinu, skorað 16 mörk í 29 leikjum en á heildina hefur hann skorað 32 mörk í 89 leikjum.
Ekki er ólíklegt að Dortmund muni bæta öðrum sóknarmanni við í sumar að sögn Zorg.