Fotbolti.net
09.04.17 - 20:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Búið að reka þjálfara Arnórs Ingva (Staðfest)

Arnór Ingvi fær nýjan þjálfara hjá Rapíd Vín.

Arnór Ingvi fær nýjan þjálfara hjá Rapíd Vín.

Canon

Mynd: Getty Images

Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason mun fá nýjan þjálfara í Austurríki. Búið er að reka Damir Canadi úr starfi, en þetta var staðfest í dag. Rapíd Vín tapaði 3-0 í gær gegn botnliði Ried.

Rapíd Vín, sem er sigursælasta félagið í sögu Austurríkis, hefur valdið vonbrigðum á þessu tímabili og er í sjöunda sæti austurrísku úrvalsdeildarinnar.
Gengi liðsins í deildinni hefur verið arfaslakt upp á síðkastið, en liðið vann síðast leik í henni í desember.

Arnór Ingvi var keyptur fyrir metfé til Rapíd Vín síðasta sumar. Hann hefur spilað 18 leiki á þessari leiktíð og skorað tvö mörk.

Goran Djuricin og Martin Bernhard munu stýra liðinu út tímabilið, en þeir voru báðir í þjálfaraliði Canadi. Átta umferðir eru eftir í deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.