Fotbolti.net
09.04.22 - 17:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Breki spilar með ÍBV í sumar (Staðfest)

Breki spilar með ÍBV í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breki Ómarsson mun leika með ÍBV í Bestu deildinni í sumar en hann hafði tilkynnt í vetur að hann hafi rift samningi sínum við félagið.

Breki hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil með ÍBV en frá árinu 2017 hefur hann leikið 65 leiki fyrir félagið og skorað 16 mörk. Hann skoraði 4 mörk í 15 leikjum í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð.

Breki greindi frá því í samtali við Fótbolta.net að aðal ástæðan fyrir riftuninni væri sú að hann stundar nám í viðskiptafræði í Reykjavík en hann útilokaði þó ekki að spila með ÍBV.

Breki lék æfingaleik með félaginu gegn Keflavík þar sem eyjamenn fóru með 4-0 sigur af hólmi og Breki skoraði tvö mörk.

Sjá einnig:
Breki riftir við ÍBV
Námið stærsta ástæðan í ákvörðun Breka - „Ekki auðvelt"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.