09.04.22 - 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
FH fær Fanney Ingu lánaða frá Val (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fanney Inga Birkisdóttir, fædd 2005, mun leika með FH að láni í sumar.
Fanney Inga er fyrirliði U17 ára landsliðs Íslands og er uppalin hjá Val.
Hún á leiki að baki með meistaraflokki, þrjá í Reykjavíkurmótinu, einn í deildabikar og einn í Evrópukeppni þegar hún fékk að spreyta sig í 1-3 sigri gegn FC Zürich.
Það verður áhugavert að fylgjast með Fanney þar sem hún reynir fyrir sér í Lengjudeild kvenna, ekki einu sinni komin á átjánda aldursár.
