09.04.22 - 07:40
Ívan Guðjón Baldursson
Finnbogi og Ísak aftur til Kára (Staðfest)


Mynd: Kári


Mynd: Kári
Kári er búinn að bæta tveimur leikmönnum við leikmannahópinn sinn og koma þeir báðir á lánssamningi frá ÍA.
Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson er fæddur 2002 og var fastamaður í byrjunarliði Kára í fyrra. Hann hefur fengið að spreyta sig með meistaraflokk ÍA á undirbúningstímabilinu og gæti reynst lykilmaður hjá Kára.
Ísak Örn Elvarsson er einnig fæddur 2002 og spilaði með Kára í fyrra. Hann skoraði 2 mörk í 12 leikjum en meiðsli settu strik í reikninginn.
Það er ljóst að þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Kára sem leikur í 3. deild eftir fall í fyrra.
Félagarnir eru komnir með leikheimild enda á Kári leik við Árborg í Mjólkurbikarnum í hádeginu í dag.
„Við bjóðum Finnboga og Ísak innilega velkomna aftur í Kára 😍😎"
