Fotbolti.net
09.04.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Hannes Sigurðsson tekur við Burghauser (Staðfest)

Hannes Sigurðsson tekur við Burghauser (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hannes Þorsteinn Sigurðsson mun taka við SV Wacker Burghausen á næstu leiktíð í þýsku svæðisdeildinni (D-deild) fyrir Bæjaraland.

Hannes tekur við í sumar en hann hefur verið aðalþjálfari FC Deisenhofen, sem leikur einni deild fyrir neðan Burghauser, síðan 2018.

„Við erum mjög ánægðir með að hafa fundið Hannes. Hann er metnaðarfullur, með mikla ástríðu og mikið af góðum hugmyndum. Hann stórbætti lið Deisenhofen og vonandi gengur honum jafn vel hérna hjá okkur," segir Karl-Heinz Fenk, yfirmaður íþróttamála hjá Burghauser.

Hannes lék meðal annars fyrir Stoke og Viking á spennandi ferli sem atvinnumaður í knattspyrnu. Hann skoraði eitt mark í 13 A-landsleikjum.

„Ég hlakka til nýrrar áskorunar með SV Wacker sem er félag sem er þekkt fyrir að spila skemmtilegan sóknarbolta. Við munum einbeita okkur að því að byggja upp unga leikmenn og ég hlakka sérstaklega mikið til að flytja til Burghausen sem er frábær bær," sagði Hannes.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.