Fotbolti.net
09.04.22 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

ÍH fær Arnar aftur að láni frá FH (Staðfest)

Arnar Sigþórsson.

Arnar Sigþórsson.

Canon

Mynd: FH

ÍH hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi leiktíð í 3. deild karla.
Arnar Sigþórsson er kominn á láni frá FH. Arnar er tvítugur sóknarmaður sem lék einnig með ÍH í fyrra og skoraði hann þá fjögur mörk í 12 deildarleikjum.

Hann kom líka við sögu í þremur leikjum með Þrótti Vogum í 2. deild í fyrra eftir að hafa skorað 15 mörk í 16 leikjum með 2. flokki FH sumarið áður.

„ÍH er í óðaönn að styrkja sig fyrir komandi tímabil og hefur okkur borist gríðarlegur liðsstyrkur," segir í tilkynningu ÍH sem hafnaði í tíunda sæti 3. deildar síðasta sumar.

Arnar gæti spilað með ÍH á eftir þegar liðið leikur gegn Kórdrengjum í Mjólkurbikarnum. Hefst sá leikur klukkan 12:30.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.