Fotbolti.net
09.04.22 - 08:20
Ívan Guðjón Baldursson

Völsungur fær bandarískan miðjumann (Staðfest)

Völsungur fær bandarískan miðjumann (Staðfest)
Canon

Mynd: Völsungur

Kvennaboltinn

Völsungur var að fá öflugan liðsstyrk frá Bandaríkjunum þar sem miðjumaðurinn Allyson Abruzzi er búinn að semja út tímabilið á Húsavík.

Allyson er 22 ára gömul og hefur ekki staðist mátið að flytja á Húsavík eftir að hafa horft á Eurovision myndina með Will Ferrell í aðalhlutverki.

Hún er kvikur, sóknarglaður og skapandi miðjumaður sem Völsungur bindur miklar vonir við í sumar. Allyson er búin að vera á landinu undanfarnar vikur en leikheimild fékkst rétt í tæka tíð fyrir leik gegn KH í Lengjubikarnum í dag.

Allyson er útskrifuð úr háskóla og skoraði 6 mörk í 17 leikjum á síðustu leiktíð í háskólaboltanum.

„Við bjóðum Allyson hjartanlega velkomna í Völsung og til Húsavíkur en við væntum mikils af henni í sumar," segir í færslu Völsungs á Facebook.

Völsungur leikur í 2. deild eftir tap gegn Fjölni í umspilinu í fyrra. Stefnan er sett á að fara upp í Lengjudeildina og er Allyson mikilvægur þáttur í þeim áformum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.