Fotbolti.net
09.04.22 - 11:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Warnock er hættur (Staðfest)

Neil Warnock.

Neil Warnock.

Canon

Mynd: Getty Images

Reynsluboltinn Neil Warnock hefur tekið ákvörðun um að hætta í þjálfun.
Warnock var orðaður við Sunderland í febrúar, en var ekki ráðinn. Hann hefur núna greint frá því að hann muni ekki þjálfa fleiri lið - glæstur ferill er á enda.

Þetta eru stór tíðindi þar sem Warnock er sá stjóri sem hefur stýrt flestum leikjum í atvinnumannabolta á Englandi.

Warnock byrjaði að þjálfa 1987 og hefur síðan stýrt 14 mismunandi félögum. Síðast stýrði hann Middlesbrough.

Warnock, sem er 73 ára, er alltaf hress. Hann ætlar að einbeita sér að öðru núna.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.