Fotbolti.net
09.05.13 - 14:29
Hafliði Breiðfjörð

Viktor Unnar í Njarðvík (Staðfest)

Viktor Unnar í Njarðvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Njarðvík hefur fengið framherjann Viktor Unnar Illugason til liðs við sig á láni frá Breiðabliki en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Viktor Unnar er uppalinn Bliki en hann fór ungur til Reading á Englandi.

Eftir heimkomuna lék Viktor með Val sumarið 2009 og fyrri hluta sumars árið 2010 áður en hann samdi við Selfyssinga.

Þessi 23 ára leikmaður kom aftur til Breiðabliks fyrir tímabilið 2011 en í fyrra var hann á láni hjá Haukum í fyrstu deildinni.

Viktor Unnar gæti spilað sinn fyrsta mótsleik með Njarðvíkingum á morgun þegar liðið heimsækir Aftureldingu í fyrstu umferðinni í 2. deildinni.

Heimild: Heimasíða Njarðvíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.