Fotbolti.net
09.05.14 - 09:46
Magnús Már Einarsson

Auðun Helga og Spánverji með Sindra í sumar (Staðfest)

Auðun Helgason í leik með Selfyssingum fyrir nokkrum árum.

Auðun Helgason í leik með Selfyssingum fyrir nokkrum árum.

Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Varnamaðurinn reyndi Auðun Helgason mun leika með Sindra í 2. deildinni í sumar.

Auðun verður fertugur í næsta mánuði en hann fékk félagaskipti í Sindra í fyrra þegar hann flutti á Höfn í Hornafirði með fjölskyldu sinni.
Auðun spilaði hins vegar ekkert með Sindra í fyrra en hann tók við sem aðstoðarþjálfari hjá Fram á miðju sumri.

Þessi fyrrum varnarmaður íslenska landsliðsins mun nú taka slaginn með Sindra í sumar en hann var við hlið Óla Stefáns Flóventssonar þjálfara liðsins í æfingaleik gegn Grindavík um síðustu helgi.

Sindramenn hafa einnig fengið spænska miðvörðinn Rodrigo Gomez Mateo í sínar raðir.

Mateo kemur í stað Admir Kubat sem varð að hætta við að ganga í raðir Sindra af persónulegum ástæðum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.