09.05.14 - 21:01
Hafliði Breiðfjörð
Björgólfur Takefusa í Fram (Staðfest)

Björgólfur ásamt Bjarna Guðjónssyni þjálfara Fram í kvöld.

Mynd: Fram

Sóknarmaðurinn Björgólfur Takefusa skrifaði í kvöld undir 5 mánaða samning við úrvalsdeildarlið Fram.
Björgólfur tók sér hvíld frá knattspyrnuiðkun eftir að hann sagði skilið við Val í júní í fyrra en mætir nú ferskur til leiks með Fram.
Björgólfur, sem er 34 ára, er einn af mestu markaskorurum í efstu deild á þessari öld en hann vann gullskóinn 2009.
Hann hefur skorað 115 mörk í 253 leikjum í meistaraflokki.
,,Fram fagnar því að fá Björgólf Takefusa í herbúðir félagsins,\" sagði í tilkynningu félagsins.