Fotbolti.net
09.05.14 - 18:25
Elvar Geir Magnússon

Egill Trausti og Suður-Afríkumaður í Aftureldingu (Staðfest)

Atli Eðvaldsson, þjálfari Aftureldingar.

Atli Eðvaldsson, þjálfari Aftureldingar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Egill Trausti Ómarsson hefur gengið í raðir Aftureldingar frá Fylki. Þessi fjölhæfi leikmaður kom við sögu í níu leikjum í Pepsi-deildinni síðasta sumar.
Þá hefur miðjumaðurinn Nicholas Anthont Efstathiou frá Suður-Afríku einnig fengið skipti í Mosfellsbæjarliðið.

Árið 2011 lék Efstathiou fjóra leiki með Víkingi Ólafsvík í 1. deildinni.

Afturelding var hársbreidd frá því að komast upp í 1. deild á síðasta tímabili en liðinu er spáð öðru sæti í 2. deildinni í sumar.

Þjálfari liðsins er Atli Eðvaldsson en með því að smella hér má lesa nánar um liðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.