09.05.14 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum leikmaður Levante í Víking Ó. (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ólafsvík í fyrstu deildinni hefur fengið til sín Alejandro Abarca Lopez frá Spáni en hann kemur til með að styrkja liðið fyrir komandi átök í sumar.
Lopez, sem er 27 ára gamall, var á mála hjá Elche, Eldense og Levante á Spáni en tvö af þessum liðum leika í efstu deild þar í landi.
Hann getur spilað á vinstri væng, miðju og sem fremsti maður en Ólafsvíkingar fengu til sín á dögunum leikmann úr varaliði Bayer Leverkusen og ljóst að Ejub Purisevic ætlar að koma liðinu aftur upp í efstu deild.
Hér fyrir neðan má sjá myndband af Lopez.