09.05.16 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Gus Poyet tekur við Real Betis í sumar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Gustavo Poyet tekur við spænska félaginu Real Betis í sumar og er hann búinn að skrifa undir tveggja ára samning.
Poyet er úrúgvæskur þjálfari og hefur stýrt þremur félagsliðum eftir farsælan feril sem leikmaður.

Poyet hóf þjálfaraferilinn hjá Brighton og var þar í fjögur ár áður en hann var ráðinn til Sunderland og varð þannig fyrsti úrúgvæski stjórinn í ensku úrvalsdeildinni.
Poyet stýrði Sunderland í eitt og hálft ár en var rekinn eftir fjögurra marka tap á heimavelli gegn Aston Villa í mars í fyrra.
Poyet hefur þjálfað AEK frá Aþenu í gríska boltanum síðan í október en hann tók við sem tímabundinn þjálfari og er því samningslaus í sumar.
Real Betis er í 13. sæti spænsku deildarinnar, fimm stigum frá fallsvæðinu, þegar tvær umferðir eru eftir af tímabilinu.