Fotbolti.net
09.05.16 - 13:25
Gunnar Birgisson

Lars hættir þjálfun Íslands eftir EM (Staðfest)

Lars hættir með liðið eftir EM

Lars hættir með liðið eftir EM

Canon

Mynd: Fótboti.net - Ómar Vilhelmsson

Powerade
„Lars hættir með liðið og verður síðasti mótsleikur hans með landsliðinu á EM.\" sagði Geir Þorsteinsson á blaðamannafundi íslenska landsliðsins nú rétt í þessu.
Ljóst er að Lars hættir með landsliðið eftir EM og tekur Heimir Hallgrímsson þá við.

Margar spurningar vöknuðu hjá blaðamönnum í kjölfar þessa frétta og fyrsta spurningin „Af hverju?\"

„Aðal ástæðan er að ég ætti kannski að gera eitthvað annað með fjölskyldu og vinum. Maður á lítið félagslíf í þessu starfi,\" sagði Lars.

Guðmundur Benediktsson aðstoðarþjálfari KR skaut því að Lars að okkur Íslendingum vantaði forseta. „Ég vil ekki íslensku þjóðinni það illt að ég verði forseti,\" sagði Lars brosandi. „En húsið sem forsetinn býr í er mjög flott.\"

Ekki er orðið ljóst hver tekur við liðinu með Heimi og sagði Geir að fundað yrði um það von bráðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.