Fotbolti.net
09.05.16 - 18:00
Elvar Geir Magnússon

Ragnar Þór Gunnarsson í Tindastól (Staðfest)

Ragnar Þór Gunnarsson í Tindastól (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Ragnar Þór Gunnarsson hefur fengið félagaskipti úr Selfossi yfir í 3. deildarlið Tindastóls.
Ragnar, sem er á 22 aldursári, þekkir til hjá Tindastóli en hann lék í mánuð með liðinu á lánssamningi í fyrra.

Hann lék 14 leiki með Selfossi í 1. deildinni í fyrra og skoraði eitt mark þegar liðið hafnaði í tíunda sæti.

Eftir viku mun Tindastóll leika gegn Vængjum Júpiters í fyrstu umferð 3. deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.