09.05.17 - 12:30
Magnús Már Einarsson
Advocaat tekinn við Hollandi (Staðfest)

Advocaat stýrði Sunderland árið 2015.

Mynd: Getty Images

Advocaat stýrði Sunderland árið 2015.

Mynd: Getty Images
Hinn 69 ára gamli Dick Advocaat hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Hollendinga í þriðja skipti á ferlinum. Advocaat þjálfaði Hollendinga frá 1992 til 1994 og aftur frá 2002 til 2004.
Advocaat þjálfar í dag Fenerbahce í Tyrklandi en hann lætur a störfum þar í sumar.
Ruud Gullit, fyrrum stjóri Chelsea, verður aðstoðarmaður Advocaat með Hollendinga.
Advocaat þjálfar í dag Fenerbahce í Tyrklandi en hann lætur a störfum þar í sumar.
Ruud Gullit, fyrrum stjóri Chelsea, verður aðstoðarmaður Advocaat með Hollendinga.
Danny Blind var rekinn úr starfi landsliðsþjálfara í mars en Hollendingar eru í fjórða sæti í undankeppni HM 2018.
Mikið basl hefur verið á Hollendingum undanfarin ár en þeir misstu af sæti á EM í fyrra eftir að hafa endað fyrir aftan Ísland, Tékkland og Tyrkland í undankeppninni.
Mikið basl hefur verið á Hollendingum undanfarin ár en þeir misstu af sæti á EM í fyrra eftir að hafa endað fyrir aftan Ísland, Tékkland og Tyrkland í undankeppninni.
