09.05.17 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Brynjar Steinþórs í ÍR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson

Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
ÍR hefur fengið varnarmanninn Brynjar Steinþórsson til liðs við sig frá Gróttu.
Brynjar lék þrettán leiki með Gróttu þegar liðið fór upp úr 2. deildinni í fyrra.

Hann fór til Bandaríkjanna í skóla í ágúst en í sumar mun hann leika með ÍR í Inkasso-deildinni.
Brynjar er fæddur árið 1996 en hann er uppalinn hjá Fjölni.
ÍR tapaði 1-0 gegn Selfyssingum í fyrstu umferðinni í Inkasso-deildinni í síðustu viku.
Næsti leikur liðsins er gegn Þrótti Reykjavík á heimavelli á föstudagskvöld.
Brynjar er kominn með leikheimild með ÍR og hann getur því leikið sinn fyrsta leik með liðinu þar.