09.05.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ched Evans aftur til Sheffield United (Staðfest)

Ched Evans skrifaði undir þriggja ára samning.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Ched Evans er genginn aftur í raðir Sheffield United, en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Hann kemur til liðsins frá Chesterfield.
Hinn 28 ára gamli Evans spilaði síðast fyrir Sheffield United árið 2012, en þá lenti hann í miklum vandræðum. Hann var hann fundinn sekur um nauðgun og var í kjölfarið dæmdur í fimm ára fangelsi.

Við endurupptöku málsins var Evans síðan dæmdur saklaus eftir að hafa setið inni í tvo og hálft ár.
Evans gekk til liðs við Chesterfield eftir fangelsisvistina. Þar hefur hann skorað sjö mörk í 29 leikjum, en þrátt fyrir það er liðið fallið úr ensku C-deildinni. Því hefur Evans ákveðið að breyta til.
„Við höfum unnið heimavinnuna okkar um leikmanninn. Við tölum mikið um góðan liðsanda og við stefnum að því að bæta við okkur leikmönnum sem geta verið hluti af því,\" sagði Chris Wilder, stjóri Sheffield United, um kaupin á Evans.
Talið er að kaupverðið sé 500 þúsund pund.