09.05.17 - 18:00
Magnús Már Einarsson
Höttur fær Spánverja (Staðfest)

Mynd: Björn Ingvarsson

Mynd: Björn Ingvarsson
Höttur hefur fengið spænska leikmanninn Ignacio Gonzalez Martinez til liðs við sig fyrir keppni í 2. deild í sumar.
Nacho, eins og hann er kallaður, getur leikið bæði á kanti og í fremstu víglínu.

Höttur tapaði 4-1 á útivelli gegn Víði Garði í fyrstu umferðinni í 2. deildinni um helgina.
Næsti leikur Hattar er gegn KV á heimavelli á laugardag en Nacho gæti leikið sinn fyrsta leik þar.
Sömu sögu er að segja af serbneska varnarmanninum Petar Mudresa en hann er kominn með leikheimild með Hetti. Petar gat ekki spilað gegn Víði þar sem leikheimild var ekki komin.