Fotbolti.net
09.06.13 - 14:13
Hafliði Breiðfjörð

Joaquin Caparros tekur við Levante (Staðfest)

Joaquin Caparros.

Joaquin Caparros.

Canon

Mynd: Getty Images

Levante á Spáni hefur gengið frá ráðningu á Joaquin Caparros sem næsta þjálfara liðsins en hann semur til eins árs.
Caparros sem er 57 ára gamall terku við starfinu af Juan Ignaio Martinez sem fékk þau skilaboð fyrr í vikunni að hann fengi ekki nýjan samning þegar núverandi samningur rennur út 30. júní.

Í yfirlýsingu á vef félagsins var ráðning Caparros staðfest í dag en hann hefur áður stýrt liðum eins og Villarreal, Sevilla og Deportivo La Coruna. Hann verður formlega kynntur á fréttamannafundi á þriðjudaginn.

Levante missti af sæti í Evrópudeildinni í lokaumferð spænsku deildarinnar eftir 1-1 jafntefli við Real Betis.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.