Fotbolti.net
09.06.13 - 07:00
Hafliði Breiðfjörð

Sveinbjörn Ingi Grímsson í Völsung (Staðfest)

Sveinbjörn Ingi í leiknum í gær.

Sveinbjörn Ingi í leiknum í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Völsungur fékk undanþágu á félagaskiptareglum KSÍ í gær þegar markvörðurinn Sveinbjörn Ingi Grímsson gekk til liðs við félagið frá Gróttu.
Dejan Pesic markvörður liðsins meiddist í bikarleiknum gegn Fylki og þess vegna lék Kjartan Páll Þórarinsson framkvæmdastjóri félagsins í markinu gegn Þrótti í síðustu umferð. Kjartan hafði ekki spilað fótbolta í tvö ár þegar að þeim leik kom og meiddist strax.

Þá voru góð ráð dýr enda félagaskiptaglugginn lokaður en Völsungur fékk undanþágu til að fá Sveinbjörn Inga til liðs við sig og hann spilaði í 4-2 tapinu gegn Grindavík í gær.

Sveinbjörn sem er 23 ára gamall var markvörður Völsungs í 3. deildinni árið 2009 og spilaði þá 19 leiki fyrir liðið í deild og bikar. Hann spilaði svo fimm leiki með ÍH árið 2011 en hefur ekki spilað síðan þó hann hafi haft leikheimild með Gróttu síðan 16. maí síðastliðinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.