Fotbolti.net
09.06.14 - 12:38
Alexander Freyr Tamimi
Ítalska deildin

AC Milan rekur Seedorf - Inzaghi tekur við (Staðfest)

Seedorf hefur verið látinn fjúka.

Seedorf hefur verið látinn fjúka.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan staðfesti rétt í þessu að Clarence Seedorf hafi verið rekinn úr starfi þjálfara og hefur fyrrum framherjinn Filippo Inzaghi verið ráðinn í hans stað.

Hollendingurinn Seedorf var ráðinn sem þjálfari AC Milan í janúar síðastliðnum eftir að Massimiliano Allegri var rekinn. Eftir brösuga byrjun tókst Seedorf að koma liðinu á fínt skrið, en það dugði þó greinilega ekki til og hefur hann verið rekinn.
Arftaki hans, Filippo Inzaghi, hefur undanfarið þjálfað unglingalið AC Milan. Hann er í guðatölu hjá félaginu eftir mörg farsæl ár þar sem hann var um tíma einn allra besti framherji heims.

Inzaghi lék með AC Milan frá árinu 2001 fram til 2012 þegar hann lagði skóna á hilluna. Hann og Seedorf voru lengi vel liðsfélagar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.