Fotbolti.net
09.06.14 - 19:50
Ívan Guðjón Baldursson

Colback til Newcastle (Staðfest)

Jack Colback er hér í baráttu við Damien Duff.

Jack Colback er hér í baráttu við Damien Duff.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Jack Colback er genginn til liðs við Newcastle United frá erkifjendunum og nágrönnunum í Sunderland.

Colback er uppalinn hjá Sunderland og hefur leikið fyrir aðalliðið í sex ár, þar sem hann á 115 deildarleiki að baki.
Colback spilar sem miðjumaður og hefur ekki leikið með öðru liði heldur en Sunderland fyrir utan tvö tímabil þar sem hann var lánaður til Ipswich.

Talið er að miðjumaðurinn, sem á einn U20 ára landsleik að baki fyrir England, hafi fengið fimm ára samning, en hann er aðeins 24 ára gamall.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.