Fotbolti.net
09.06.14 - 20:42
Ívan Guðjón Baldursson

Matty Fryatt til Nottingham Forest (Staðfest)

Matty Fryatt og Per Mertesacker í úrslitaleik enska bikarsins.

Matty Fryatt og Per Mertesacker í úrslitaleik enska bikarsins.

Canon

Mynd: Getty Images

Úrvalsdeildarfélagið Hull City er búið að selja sóknarmanninn Matty Fryatt til Nottingham Forest sem leikur í Championship deildinni.

Fryatt er búinn að vera leikmaður Hull í þrjú ár og hefur hann skorað 27 mörk í 82 deildarleikjum hjá félaginu.
Fryatt er 28 ára gamall og var leikmaður Leicester City áður en hann fór til Hull. Sóknarmaðurinn hefur því mikla reynslu úr Championship deildinni og skoraði 51 mark í 168 deildarleikjum Leicester.

Fryatt var lánaður til Sheffield Wednesday í tvo mánuði á nýliðnu tímabili og skoraði hann þar fjögur mörk í níu leikjum.

Fryatt skrifar undir þriggja ára samning við Nottingham Forest.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.