09.06.14 - 19:34
Valur Páll Eiríksson
Steve Sidwell til Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke hefur staðfest komu miðjumannsins Steve Sidwell til liðsins en hann framlengdi ekki við Fulham eftir að liðið féll í Championship-deildina í vor.
Stoke verður fimmta úrvalsdeildarliðið sem Sidwell spilar með en hann hefur tæplega 200 úrvalsdeildarleiki með Reading, Chelsea, Aston Villa og nú síðast Fulham.
Þónokkur félög höfðu sett sig í samband við Sidwell en hann segir eina aðalástæðu þess að hann kaus Stoke vera þjálfarann Marki Hughes en Hughes fékk Sidwell einmitt til Fulham árið 2011.
,,Það voru tvær meginástæður fyrir því að ég ákvað að koma til Stoke sú fyrri að klúbburinn er á mikilli uppleið. Fótboltinn sem þeir spiluðu á síðustu leiktíð heillaði mig.\" sagði Sidwell
,,Sú síðari er þjálfarinn, Mark Hughes, því hann er maður sem ég ber mikla virðingu fyrir. Hann fékk mig til Fulham á sínum tíma og ég naut mjög tíma míns með honum þar.\"

Heimild: Heimasíða Stoke