09.06.20 - 15:03
Elvar Geir Magnússon
Guðmundur Steinn í KA (Staðfest)

Guðmundur Steinn Hafsteinsson og þjálfari KA, Óli Stefán Flóventsson.

Mynd: KA

Guðmundur Steinn í leik með Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Guðmundur Steinn Hafsteinsson er búinn að skrifa undir hjá KA en Boltinn á Norðurlandi sagði frá þessu. Skömmu síðar staðfesti KA fréttirnar.
Guðmundur Steinn sem er þrítugur yfirgaf herbúðir Stjörnunnar eftir síðasta tímabil eftir tveggja ára dvöl í Garðabænum. Hann skoraði þrjú mörk í átján leikjum í Pepsi Max-deildarinnar í fyrra en var mikið notaður sem varaskeifa.
Á ferli sínum hefur hann einnig leikið fyrir Víking Ólafsvík, Fram, ÍBV, HK og uppeldisfélag sitt Val.
KA er sjöunda sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar.
Liðið varð fyrir áfalli í vetur þegar sóknarmaðurinn Elfar Árni Aðalsteinsson meiddist illa en hann mun ekkert spila á þessu tímabili.

Af heimasíðu KA:
KA fékk í dag góðan liðsstyrk fyrir komandi átök í Pepsi Max deildinni í sumar þegar Guðmundur Steinn Hafsteinsson skrifaði undir samning við liðið. Samningurinn gildir út þetta sumar og erum við gríðarlega ánægð með að fá þennan öfluga leikmann norður.
Guðmundur sem er hávaxinn framherji gengur til liðs við KA frá RW Koblenz í Þýskalandi en hann verður 31 árs síðar í mánuðinum. Hann hóf feril sinn með Val og lék með liðinu frá 2007-2010 en auk Vals hefur hann leikið með HK, Víkingi Ólafsvík, Fram, ÍBV og Stjörnunni hér á landi. Þá lék hann eitt ár með norska liðinu Notodden.
Sumarið 2017 skoraði Guðmundur 8 mörk í efstu deild með Víkingi Ólafsvík og árið eftir gerði hann 7 mörk með Stjörnunni. Alls hefur hann leikið 200 deildar- og bikarleiki á Íslandi og skorað í þeim 56 mörk.
Það er ljóst að koma Guðmundar mun styrkja sóknarlínu okkar liðs en fyrsti leikur sumarsins er á sunnudaginn þegar strákarnir sækja lið ÍA heim. Við bjóðum Guðmund velkominn í KA og hlökkum til að sjá hann í gula búningnum í sumar.

Mikkel Qvist með vítaköstin á Guðmund Stein ætti að bjóða upp á eitthvað vesen í vítateigum landsins.
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) June 9, 2020
Skúbb í boði Boltans á Norðurlandi!
— Boltinn á Norðurlandi (@BoltinnPodkast) June 9, 2020
Samkvæmt mjög áreiðanlegum heimildum þá er Guðmundur Steinn að semja við KA og mun hann spila með þeim í sumar🤝✍️@Fotboltinet

Guðmundur Steinn í leik með Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð