Fotbolti.net
09.06.20 - 18:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Lillo nýr aðstoðarmaður Pep hjá City (Staðfest)

Lillo nýr aðstoðarmaður Pep hjá City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur tilkynnt að Juan Manuel Lillo er nýr aðstoðarmaður Pep Guardiola. Lillo fyllir í skarðið sem Mikel Arteta, nú stjóri Arsenal, skildi eftir.

Lillo er 54 ára reynslubolti sem þjálfaði Guardiola á seinni stigum leikmannaferilsins. Þá voru þeir hjá mexíkóska liðinu Dorados.
„Samband mitt við Pep nær mörg ár til baka og ég er yfir mig ánægður með að vera hluti af þjálfarateyminu hjá spenanndi liði," sagði Lillo.

Síðasta starf Lillo var hjá Qingdao Huanghai í kínversku 1. deildinni þar sem hann stýrði liðinu upp í efstu deild þar í landi.

Sjá einnig:
Guardiola og Lillo ræddu oft langt fram á nótt í Mexíkó
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.