Fotbolti.net
09.06.20 - 18:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Madeline Gotta til Þór/KA (Staðfest)

Madeline Gotta til Þór/KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Thorsport

Kvennaboltinn
Þór/KA hefur samið við Madeline Gotta sem er 22 ára bandarískur leikmaður. Þetta kemur fram á thorsport.is. Þar segir ennfremur að unnið sé að því að klára formsatriði fyrir félagaskiptin.

Madeline er frá San Diego í Kaliforníu og hefur spilað í bandaríska háskólaboltanum undanfarin ár. Maddy, eins og Madeline er kölluð, er sóknarmaður og kemur til með að auka breidd Þór/KA liðsins fram á við en liðið missti einn besta leikmann Íslandsmótsins, Söndru Stephany Mayor, eftir síðustu leiktíð.
Hún var á lokaári sínu, hjá Gonzaga-háskolanum, markahæst í liðinu með sjö mörk og lagið þar að auki upp fjögur mörk.

„Með því að bæta Maddy við þennan hóp verðum við vonandi enn beittari fram á við og ég bíð bara spenntur eftir að mótið hefjist. Þrátt fyrir miklar breytingar á leikmannahópnum undanfarin tvö ár hefur metnaðurinn ekkert minnkað hjá okkur. Við viljum og ætlum okkur að vera í toppbaráttu," segir Andri Hjörvar Albertsson, þjálfari Þórs/KA við thorsport.is.

Heimild: Thorsport

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.