Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 09. júní 2021 22:33
Brynjar Ingi Erluson
Jordi Alba um Suarez: Algjör brandari að gefa hann til Atlético
Jordi Alba og Luis Suarez
Jordi Alba og Luis Suarez
Mynd: EPA
Spænski landsliðsmaðurinn Jordi Alba sat fyrir svörum á blaðamannafundi spænska liðsins í dag en hann var spurður út úrúgvæska framherjann Luis Suarez.

Barcelona tjáði Suarez að félagið hefði ekki not fyrir hann lengur og að hann væri of gamall til að spila fyrir liðið.

Félagið ákvað því að selja Atlético hann á litlar 5,5 milljónir evra en Suarez skoraði 21 mark fyrir liðið á þessu tímabili og átti stóran þátt í að tryggja Atlético spænska deildarititilinn.

Alba var ekki sáttur með þessa ákvörðun Barcelona og lét vita af því á blaðamannafundinum.

„Þetta er algjör brandari. Það var ákveðið að gefa hann til Atlético, sem er keppinauti okkar, og svo vann hann deildina. Ég var ekki sáttur með það," sagði Alba.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner