Spánverjar fóru illa með íslenska liðið í kvöld, en þær unnu hvorki meira né minna en 1-6 á Laugardalvelli í lokaleik liðanna í undankeppni HM. Íslenska liðið sá vart til sólar í leiknum og eru líklega sáttar að verkefninu sé lokið.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 6 Spánn
Cecilía Rán Rúnarsdóttir – 4
Gat lítið gert í fyrstu þremur mörkunum, átti góðar vörslur, hefði örugglega líklega getað verið betur staðsett í fjórða og sjötta markinu.
Guðrún Arnardóttir - 4
Gerði sitt ágætlega varnarlega, var með betri varnarmönnunum í dag.
Glódís Perla Viggósdóttir - 4,5
Fyrirliðinn stóð sína plikt eins og hægt var en hefði þurft að þétta vörnina mun betur.
Ingibjörg Sigurðardóttir - 3
Hefur átt betri dag í vörninni, var að gefa sóknarmönnum Spánar allt of mikið pláss og tíma. Var tekin útaf snemma í seinni hálfleik.
Sædís Rún Heiðarsdóttir - 3
Átti ekki góðan dag í vörninni, missti bæði bolta og menn í gegnum sig á slæmum stöðum.
Alexandra Jóhannsdóttir - 4
Skilaði eins og hún gat inn á miðjunni en hefur oft verið líflegri í uppspili.
Diljá Ýr Zomers – 5
Öflug varnarlega og skilaði sínu mjög vel, var einnig lífleg þegar hún komst framar á völlinn. Ljósi punkturinn hjá Íslandi í fyrri hálfleik. Tekin út snemma í síðari hálfleik
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir – 4,5
Sást lítið í fyrri hálfleik, skilaði mun betri frammistöðu í seinni hálfleik og bjó til færið sem Linda skoraði úr.
Ída Marín Hermannsdóttir – 3,5
Átti fína takta en sást svo lítið inn á milli. Tekin útaf í hálfleik.
Thelma Karen Pálmadóttir – 3,5
Hafði úr rosalega litlu að moða fram á við, virkaði óörugg á köflum, tekin útaf í hálfleik. Hún á miklu meira inn
Sandra María Jessen - 4
Var líflegust fram á við í fyrri hálfleik en þurfti að skila miklum varnarhlaupum
Varamenn:
Linda Líf Boama – 5 - maður leiksins
Hildur Antonsdóttir - 4,5
Arna Eiríksdóttir - 4,5
Hlín Eiríksdóttir – 4,5
Birta Georgsdóttir - 4,5


