Fotbolti.net
09.07.13 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Alcaraz til Everton (Staðfest)

Alcaraz til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur gengið frá samningi við paragvæska varnarmanninn Antolin Alcaraz.

Alcaraz var án félags en samningur hans við Wigan rann út á dögunum.

Þessi þrítugi leikmaður fór í læknisskoðun hjá Everton í dag og skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Hjá Everton hittir hann Roberto Martinez en þeir unnu einnig saman hjá Wigan.

Martinez hefur nú þegar krækt í Arouna Kone frá sínu gamla félagi og markvörðurinn Joel Robles gæti einnig komið til Everton eftir að hafa verið á láni hjá Wigan frá Atletico Madrid á síðasta tímabili.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.