Fotbolti.net
09.07.13 - 20:00
Daníel Freyr Jónsson

Jozy Altidore kominn til Sunderland (Staðfest)

Jozy Altidore.

Jozy Altidore.

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur fengið til sín Jozy Altidore frá AZ Alkmaar. Bandaríkjamaðurinn skrifaði undir fjögurra ára samning hjá enska liðinu.
Ekki er gefið upp hve mikið Sunderland greiddi fyrir þennann 23 ára gamla framherja, en hann skoraði 38 mörk á þeim tveimur árum sem hann lék í Hollandi.

Altidore hóf ferilinn með New York Red Bulls, en hann hefur einnig leikið með Xerez, Hull og Busaspor.

Með Hull lék hann í ensku úrvalsdeildinni leiktíðina 2009-10. Þá skoraði hann eitt mark í 28 leikjum og hefur Paolo Di Canio, stjóri Sunderland, eflaust þær væntingar um að Altidore geri betur en þá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.