Fotbolti.net
09.07.13 - 18:54
Daníel Freyr Jónsson

Mark Schwarzer óvænt til Chelsea (Staðfest)

Mark Schwarzer.

Mark Schwarzer.

Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Mark Schwarzer genginn í raðir Chelsea á frjálsri sölu eftir að samningur hans hjá Fulham rann út.
Þessi fertugi Ástrali skrifaði undir eins árs samning hjá Chelsea í kvöld, en hann hefur leikið á Englandi frá árinu 1996.

Í apríl á þessu ári rauf hann 500 leikja múrinn í ensku úrvalsdeildinni og er hann á meðal leikjahæstu leikmönnum í sögu deildarinnar.

Schwarzer kemur til með að veita Petr Cech, aðalmarkverði Chelsea, samkeppni um að verja rammann á næstu leiktíð.

Heimild: Heimasíða Chelsea

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.