Fotbolti.net
09.07.13 - 20:30
Daníel Freyr Jónsson

Martinez heldur í Wigan-mennina - Robles til Everton (Staðfest)

Roberto Martinez.

Roberto Martinez.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænski markvörðurinn Joel Robles er genginn í raðir Everton frá Atletico Madrid. Skrifaði hann undir fimm ára samning á Goodison Park.
Robles er 22 ára gamall og þekkir hann vel til Roberto Martinez, stjóra Everton, eftir að hafa leikið sem lánsmaður hjá Wigan undir stjórn Martinez á síðustu leiktíð.

Lék hann alls 8 leiki í ensku úrvalsdeildinni, en hann er nú kominn til Everton þar sem hann mun veita Tim Howard samkeppni um markvarðastöðu liðsins.

Er þetta þriðji leikmaðurinn sem lék með Wigan á síðustu leiktíð en er nú hjá Wigan. Fyrr í dag gekk Antolin Alcaraz í raðir liðsins og áður hafði Everton tryggt sér þjónustu Aroune Kone.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.